Barnahátíð app for iPhone and iPad


4.1 ( 9531 ratings )
Entertainment
Developer: Ymir Mobile ehf
Free
Current version: 1.0, last update: 7 years ago
First release : 03 May 2013
App size: 839.39 Kb

Barnahátíð verður haldin í áttunda sinn í Reykjanesbæ 8. – 12. maí. Margir koma að undirbúningi hátíðarinnar og boðið verður upp á margs konar viðburði fyrir börn og foreldra. Markmið hátíðarinnar er að skapa foreldrum og börnum fjölbreytt tækifæri til frjórrar og gefandi samveru og stuðla þannig að fjölskylduvænum Reykjanesbæ.

Söfnin í bænum og leik- og grunnskólar ásamt öðrum stofnunum sem og íþróttafélög, tómstundafélög og menningarfélög taka virkan þátt í hátíðinni en að auki er öllum bæjarbúum boðin þátttaka.

Stór liður í barnahátíð er Listahátíð barna sem er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra leikskóla í Reykjanesbæ. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að barnahátíðinni þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra er höfð að leiðarljósi.